Auðkenni – Logohönnun: Tilfinning eða vísindi?

Þórhallur Kristjánsson
Þórhallur Kristjánsson

Þórhallur Kristjánsson, grafískur hönnuður og kennari við Myndlistaskólann á Akureyri, heldur Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi í dag kl. 17:00 undir yfirskriftinni Auðkenni – Logohönnun: Tilfinning eða vísindi? Í fyrirlestrinum fjallar hann um vinnuna á bakvið góð merki.

Þórhallur Kristjánsson hefur hannað fjölda þjóðþekktra merkja fyrir fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög auk þess hefur hann setið í dómnefndum fyrir samkeppnir um merki. Hann útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1995 og hefur starfað sem slíkur allar götur síðan. Frá 2006 hefur Þórhallur starfað sjálfstætt en var áður hönnuður og hönnunarstjóri á auglýsingastofum í Reykjavík. Hann kennir einnig við Listhönnunardeild Myndlistaskólans á Akureyri.

 

Fyrirlesturinn er sá níundi í röð fyrirlestra sem haldnir eru á hverjum þriðjudegi í Listasafninu, Ketilhúsi í allan vetur. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Síðasti Þriðjudagsfyrirlesturinn fyrir jól heldur Guðrún Pálína Guðmundsdóttir 8. desember næstkomandi.

Nýjast