Áramótafögnuður Akureyringa fór vel fram

Ekki þurfti að kalla út slökkvibíla á Akureyri á nýársnótt sem telst mjög gott.  Áramótafögnuður Akureyringa og nærsveitunga  fór því afar vel fram. Sjúkrabílar liðsins voru kallaðir 6 sinnum út í minni háttar óhöpp.  

"Það veit á gott þegar rólegt er að gera hjá okkur og gefur vísbendingar um að áramótagleði íbúa hafi farið vel fram," segir Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri í pistli á vefsíðu slökkviliðssins. Á árinu 2008 voru farin 495 sjúkraflug 528 sjúklinga. Á Akureyri er miðstöð sjúkraflugs á landinu og er þjónustusvæðið allt landið utan Vestmannaeyja,  flugfélagið Mýflug sér um flugvélakostinn. Sjúkraflutningamenn frá Slökkviliði Akureyrar fara í öll sjúkraflug og einnig læknar frá FSA sé þess óskað. Slökkviliðið hefur sinnt þessu hlutverki í 11 ár og hefur fjöldi sjúkrafluga nær tvöfaldst á síðustu 5 árum.

Nýjast