Anna með lokasýningu Listasumars í Ketilhúsinu

Anna Gunnarsdóttir opnar lokasýningu Listasumars á Akureyri 2008 í Ketilhúsinu á Akureyrarvöku 30. ágúst kl. 16. Sýningin ber yfirskriftina "Dulmögn djúpsins" og stendur fram yfir Sjónlistarhátíð 22. september.  

Anna Gunnarsdóttir lærði textíl hönnun í Bandaríkjunum, Danmörku og á Íslandi. Hún hefur aðallega fengist við vinnslu á þæfðri ull og textíl. Hún blandar saman nytjavöru, myndlist og fatahönnun með þessum miðlum. Hún á að baki fjölmargar sýningar, þar á meðal yfir um 38 samsýningar og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenningar fyrir verk sín. Hún er annar eigandi gallerí "Svartfugl og Hvítspóa" í miðbæ Akureyrar. Anna er bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.

Anna segir svo um sýningu sína í Ketilhúsinu: "Talið er að upphaf  lífsins  hafi verið í sjónum. Botn hafsins hefur margt að geyma þar sem enginn hefur komið og aðeins ímyndunaraflið ræður för. Líkt og í sál mannsins er þar ýmislegt okkur dulið. Síðan ég var lítil stelpa að leika mér í fjörunni hefur mig alltaf langað til þess að kanna dulda heima djúpsins og margbreytileg form hinna ýmsu dýra. Þetta er mín sýn á djúp hafsins og dulmögnum þess."

Nýjast