Rafrænni hugmyndasöfnun fyrir heiti á nýtt sameinað sveitarfélag Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar hefur staðið yfir að undanförnu en henni lauk 3. febrúar sl. Alls voru tillögurnar sem bárust 281 talsins.
Á vef Skútustaðahrepps er greint frá því að undirbúningsstjórn hafi nú yfirfarið tillögurnar og valið átta heiti sem fara til umsagnar Örnefnanefndar. Örnefnanefnd skal skila rökstuddu áliti sínu innan þriggja vikna frá því að erindi berst.
„Þegar umsagnir liggja fyrir, verður íbúum sveitarfélaganna boðið að taka þátt í ráðgefandi rafrænni skoðanakönnun sem fer fram í lok mars eða apríl. Þátttaka verður með rafrænum skilríkjum. Ný sveitarstjórn ákveður heiti sveitarfélagsins að afloknum sveitarstjórnarkosningum,“ segir á vef sveitarfélagsins.
Tillögur sem fara til umsagnar eru eftirfarandi:
Heiti sveitarfélags skal samrýmast íslenskri málfræði og málvenju skv. sveitarstjórnarlögum. Örnefnanefnd starfar samkvæmt lögum um örnefni. Markmið laga um örnefni samkvæmt eru: