“Í gærkvöldi var fundur hjá Einingu Iðju þar sem hugur manna var kannaður til tilboðs SA um frekari frestun launahækkana. Björn sagði að mikill meirihluti félagsmanna vildi skoða tilboð SA frekar en að slíta samningum og fara út í kjaraviðræður í því ástandi sem nú er. Hann segir að ef SA dragi tilboð sitt til baka stefni í að samningar verði þá lausir og fullkomin óvissa verði þá á vinnumarkaði.