Aldurstakmark verður inn á tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar

Það er ekki aðeins á Akureyri sem aðgengi að tjaldsvæðum verður takmarkað næstu daga, því aldurstakmark verður einnig inn á tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar við Hrafnagilsskóla dagana 14. - 18. júní nk. Þar er miðað við að gestir yngri en 25 ára verði í fylgd foreldra. Tjaldsvæðið verður einnig lokað fyrir nýja gesti frá 12 á miðnætti til kl 8 á morgnana þessa daga. Eins og fram hefur komið og í ljósi reynslu frá dögunum kringum 17. júní síðustu ár, sem hafa einkennst af ofbeldi og áfengis- og vímuefnaneyslu á tjaldsvæðunum, verður aðgengi stýrt að tjaldsvæðunum á Akureyri í ár.  Einnig verður aukin öryggis- og löggæsla til að tryggja að reglum tjaldsvæðanna sé framfylgt. Aðgengi er fyrir fjölskyldufólk og miðast við 20 ár fyrir aðra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá tjaldsvæðum Akureyrar. Tjaldsvæðin eru fjölskyldutjaldsvæði og eru allar umgengis og hegðunarreglur miðaðar við það.

Nýjast