Aldrei hafa fleiri sótt barna- skemmtun Minjasafnsins

Fjölmenni var á barnaskemmtun Minjasafnsins á Akureyri sl. fimmtudag, sumardaginn fyrsta. Aldrei hafa fleiri sótt þennan árlega viðburð sem skipar stóran sess í hjarta margra fjölskyldna en talið er að um 800 manns hafi sótt safnið heim þennan dag.  Rúmlega 200 manns mynduðu hjarta til að þakka Rafeyrarmönnum fyrir hjartað í Vaðlaheiðinni.  

Hjartað hefur lýst upp skammdegið í vetur og yljað íbúum svæðisins og ferðamönnum, innlendum sem erlendum, um hjartarætur síðustu mánuði. Ömmur, afar, mömmur, pabbar, frænkur, frændur, systur og bræður gæddu sér á 800 lummum ásamt 60 lítrum af kaffi og kakói. Börn og fullorðnir skemmtu sér í pokahlaupi, búleikjum og gerð sjálfsmynda. Ófáar ferðir voru farnar með hestvagninum og bros skein af andliti hvers barns eftir stuttan túr á hestbaki auk þess sem sýningar safnsins heilluðu margan gestinn. Fjölmörg börn nýttu sér kosningarétt sinn og kusu um nafn sumarsýningar safnsins sem fjallar um líf barna.

Nýjast