Öldrunarheimilið Hlíð tekur þessa dagana þátt í tilraunarverkefninu Motiview í samstarfi við fyrirtækið Motitech í Noregi. Um er að ræða hjólaverkefni þar sem íbúar hjóla þrisvar sinnum í viku í tvo mánuði fyrir framan stóran sjónvarpsskjá, horfa á myndbönd frá Akureyri og hlusta á skemmtilega tónlist á meðan. Búið er að taka upp þrjá hjólatúra á Akureyri en einnig er hægt að velja myndbönd frá Reykjavík, Noregi, Danmörku og víðar. Íbúarnir geta því farið í ýmis ferðalög á meðan hjólað er. Nánar er fjallað um þetta áhugaverða verkefni í prentútgáfu Vikudags.
-Vikudagur, 3. mars