Akureyringar sigruðu í boðgöngu á Skíðamóti Íslands

A-sveit Skíðafélags Akureyrar sigraði 3x7,5 km í boðgöngu karla á Skíðamóti Íslands á Ísafirði í dag. Sveitina skipuðu: Andri Steindórsson, Jón Þór Guðmundsson og Brynjar Leó Kristinsson. Í öðru sæti var A-sveit Skíðafélags Ísfirðinga og í þriðja sæti var B-sveit Skíðafélags Akureyrar. Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík urðu þrefaldir Íslandsmeistarar í alpagreinum en þau unnu sigur í stórsvigi, svigi og alpatvíkeppni. Andri Steindórsson varð þrefaldur meistari í norrænum greinum. Hann sigraði í göngu með hefðbundinni aðferð, varð annar í göngu með frjálsri aðferð og sigraði í tvíkeppni. Þá var hann í sigursveitinni í boðgöngu.

Silja Hrönn Sigurðardóttir, Austra, og Kristinn Ingi Valsson, Dalvík, urðu Íslandsmeistarar í samhliða svigi í dag. Katrín Kristjánsdóttir, yngri systir Dagnýjar Lindu varð önnur í sviginu og Selma Benediktsdóttir úr Ármanni varð í þriðja sæti. Gísli Rafn Guðmundsson úr Ármanni var annar í svigi karla og Húsvíkingurinn Stefán Jón Sigurgeirsson, sem keppnir fyrir Akureyri varð þriðji. Í stórsvigi kvenna varð Tinna Dagbjartsdóttir frá Akureyri önnur og Arnar Þorvaldsson varð annar í karlaflokki. Í 10 km skíðagöngu með frjálsri aðferð sigraði Sævar Birgisson frá Sauðárkróki í  flokki karla 20 ára og eldri. Annar var Andri Steindórsson, Akureyri og í þriðja sæti varð Birkir Þór Stefánsson af Ströndum.  Ísfirðingar unnu þrefaldan sigur í boðgöngu kvenna á Skíðamóti Íslands í dag.

Nýjast