Stóri plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 30. apríl um land allt og því sniðugt að kynna sér helstu upplýsingar og jafnvel hita upp. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.
Akureyringar eru hvattir til að hreinsa (plokka) rusl í sínu nærumhverfi enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hverfur á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska.
Facebook-hópurinn Plokk á Akureyri er sniðugur vettvangur til að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur í máli og myndum.
Stærri hópar sem hafa áhuga á að plokka er bent á að hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar til að fá ráðleggingar um svæði sem þörf er á að plokka. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið jbg@akureyri.is.
Afrakstur plokksins má skilja eftir í sérstökum gámum sem settir verða við allar grendarstöðvar bæjarins nema við Krambúðina við Hlíðarbraut og Glerártorg frá 27. apríl fram til mánudagsins 2. maí. Þeir sem hafa ekki tök á að fara með rusl á grendarstöðvar vegna umfangs eða stærðar þess sem þarf að fjarlægja, er bent á að senda tölvupóst á netfangið jbg@akureyri.is.
Stjórnendur og starfsfólk stofnana og fyrirtækja á Akureyri eru hvött til að plokka í kringum sína vinnustaði í vikunni og hita þannig upp fyrir stóra daginn.
Nokkur góð ráð: