Akureyrarbær hefur samþykkt þátttöku í Kolku, nýju rafrænu og sjálfvirku losunarbókhaldi fyrir sveitarfélög á Norðurlandi eystra.
Markmið verkefnisins er að innleiða sjálfvirka lausn til að mæla og halda utan um kolefnisspor og losun frá sveitarfélagsrekstri, auk þess að bjóða upp á sóunargreiningar og sjálfvirkar skýrslugerðir.
Verkefnið samþykkt af stjórn SSNE til eins árs og er hluti af sóknaráætlun og loftslagsstefnu landshlutans. Lausnin er þróuð af Advania í samstarfi við Laufið. Hún og auðveldar sveitarfélögum að halda utan um losun frá rekstri sínum.
Verkefnið er fullfjármagnað af Sóknaráætlun Norðurlands eystra fyrsta árið og hefur því engan beinan kostnað í för með sér fyrir sveitarfélögin á þessu tímabili. Árangur verkefnisins verður metinn áður en tímabilinu lýkur og tekin ákvörðun um framhaldið í samráði við sveitarfélögin.