Brýnt er að ákvarðanir verði teknar um framtíðarfyrirkomulag á rekstri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar og að fram fari uppgjör við ríkið vegna fyrri ára. Akureyrarbær hefur greitt hundruð milljóna króna með rekstri hjúkrunar- og dvalarheimila í bænum á síðustu árum þar sem daggjaldatekjur frá ríkinu hafa ekki dugað fyrir útgjöldum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
Lögum samkvæmt er fjármögnun þjónustunnar á ábyrgð ríkisins en samningur um rekstur öldrunarheimilanna hefur ekki verið í gildi frá árslokum 2008. Ríkið skilgreinir sjálft kröfur til þjónustunnar og ákvarðar daggjöldin einhliða en þau hafa langt í frá nægt til að standa undir rekstrinum síðustu árin.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem KPMG hefur unnið fyrir Akureyrarbæ um öldrunarþjónustu bæjarins, þróun, stöðu og framtíðarhorfur. Skýrslan var kynnt í bæjarráði Akureyrar í dag.
Kostnaður Akureyrarbæjar á hvern íbúa 67 ára og eldri hefur vaxið um 148% frá árinu 2007 til ársins 2014, mælt á föstu verðlagi. Skýrist það helst af viðvarandi og vaxandi halla á rekstri Öldrunarheimila Akureyrar, einkum vegna aukins launakostnaðar og raunlækkunar á daggjaldatekjum. Þannig fóru um 93% af daggjöldum ársins 2014 í launakostnað öldrunarheimilanna og heildarkostnaður við rekstur þeirra voru rúmlega 15% umfram daggjöld ríkisins.
"Mikilvægt er að ríki og sveitarfélög móti samræmda heildarstefnu í málefnum aldraðra og eyði óvissu um ábyrgð og fjármögnun þjónustunnar. Nauðsynlegt er að ríkið kostnaðargreini kröfulýsingu velferðarráðuneytisins fyrir öldrunarþjónustu og miði fjárveitingar sínar við raunkostnað," segir í tilkynningu.