Eftir að umferð var hleypt á göngugötuna á ný, fóru hellurnar í aksturslínunni að ganga til og eitthvað var um að lagnir í götunni hafi skemmst. Því var ákveðið að ráðast í þessar malbikunarframkvæmdir, sem er ódýrari framkvæmd en að skipta um hellur. Ráðgert er að ljúka þessari vinnu á morgun eða fimmtudag.