„Áhyggjur fólks af fjárhagsstöðu sinni eru aftur að aukast, en við sáum þær fara minnkandi í fyrra. Staðan núna er líkari því sem hún var fyrir kórónuveiruna,“ segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju. Félagið gerði ásamt Afli, starfsgreinafélagi á Austurlandi könnun á stöðu sinna félagsmanna. Niðurstaða er sú að fjárhagsáhyggjur fólks hafa aukist, einkum í hópi þeirra sem lægst hafa launin eða eru ekki starfandi. Fólk í yngstu aldurshópunum virðist búa við þrönga stöðu.
Fram kom í könnuninni að rúmur þriðjungur svarenda hafði síðustu 12 mánuði frestað eða hætt við að fara til tannlæknis af fjárhagsástæðum. Þá höfðu 22% frestað eð hætt við læknisheimsókn af sömu ástæðu og 17% höfðu slegið því á frest að kaupa lyf eða hætt við slík kaup.
Björn segir þetta áþekkar tölur og komu fram í könnun árið 2018, en eftir það virtust áhyggjur manna af peningamálunum vera á undanhaldi. „Þetta var á réttri leið, fór batnandi, en núna virðist koma bakslag og það eru mikil vonbrigði. Laun höfðu hækkað og eins má gera ráð fyrir að útgjöld hafi dregist saman í faraldrinum sem skýrir kannski að fólk hafði minni áhyggjur af stöðunni í fyrra, en það er erfitt að sjá þessa niðurstöðu. Að svo stór hópur er að neita sér um læknisheimsóknir,“segir Björn. Það eru einkum fólk í yngsta aldurshópnum, frá 25 til 35 ára sem hefur neitað sér um að fara til tannlæknis og eða til lækna.
„Það eru einkum þeir sem eru á lægstu laununum sem fresta þessum hlutum, við sjáum að almennt dregur úr þessum frestunum eftir aldri. Þetta segir okkur að staðan í yngsta aldurshópunum er önnur en hjá þeim sem eldri eru, þetta er fólk með ung börn og forgangsröðun þess er greinilega önnur en hjá þeim eldri,“ segir Björn.
Hann bætir við að staðfesting þess að hart sé í ári hjá ungu láglaunafólki sé að margir hafi svarað því til að helstu áherslur félagsins í komandi kjaraviðræður við sína viðsemjendur ætti að vera hærri barnabætur. „Það hefur ekki áður verið nefnt í neinu mæli meðal okkar félagsmanna, þetta er í fyrsta skipti sem fólk vill leggja áherslu á hærri barnabætur,“ segir Björn. Einnig nefndu félagsmenn að áherslur í næstu kjarasamningaviðræðum ættu að beinast að því að lækka skatta og yngra fólk nefndi einnig að auðvelda ætti ungu fólki að eignast eigið húsnæði. „Við förum með þetta veganesti inn í næstu kjaraviðræður, en undirbúningur þeirra er þegar hafinn,“ segir hann. Eldri aldurhópar benda fremur á að verja kaupmáttinn.
/MÞÞ