Áheyrnarprufur LA í dag

Leikfélag Akureyrar heldur opnar áheyrnarprufur í dag á milli klukkan 14:00 og 16:00. Félagið leitar að strák á milli 12 og 15 ára sem hefur áhuga á að taka að sér stórt og krefjandi hlutverk næsta vetur. Leikritið sem um ræðir verður frumsýnt um miðjan október, en æfingar hefjast í ágúst. Tekið verður á móti áhugasömum í Samkomuhúsinu á fyrrgreindum tíma.

Nýjast