Akureyringar halda áfram að mótmæla ríkisstjórninni og boða til mótmæla á morgun, laugardaginn 16. apríl kl. 14. Áætlað er að hittast fyrir framan Samkomuhúsið og ganga niður á Ráðhústorg til að hlýða á erindi og tónlist.
"Við mótmælum aukinni siðspillingu og spilltu stjórnvaldi og við trúum á nýja stjórnarskrá, virkt lýðræði og heiðarleika," segir í tilkynningu.