Ætla að kenna íslensku úti á velli

Uppkast af borðspili sem notað verður við kennslu til að íslenskunemarnir læri á sama tíma helstu le…
Uppkast af borðspili sem notað verður við kennslu til að íslenskunemarnir læri á sama tíma helstu leiðir barna sinni í íþrótta,- skóla,- og frístundastarfi. Mynd/aðsend.

Þekkingarnet Þingeyinga hefur í samstarfi við Norðurþing og Völsung hrundið af stað nýju þróunarverkefni þar sem íslenskunám er tengt beint við íþrótta- og frístundastarf barna. Markmiðið er að færa íslenskuna út úr hefðbundinni kennslustofu og inn í þær aðstæður sem foreldrar mæta í daglegu lífi – á íþróttavellinum, í Frístund og í samskiptum við skóla og þjálfara.

 

Námskeiðið nefnist Saman í málinu og byggir hugmyndin að því meðal annars á rannsókn Þekkingarnets Þingeyinga á reynslu erlendra íbúa á Norðurlandi eystra.

„Ég hef verið mikið í verkefnum tengdum innflytjendamálum og út frá reynslu fólksins sem við ræddum við í rannsókninni kviknaði þessi hugmynd,“ segir Ingibjörg Benediktsdóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Þekkingarneti Þingeyinga.

Rannsóknin, Í átt að inngildingu, byggir á viðtölum við 30 erlenda íbúa á Norðurlandi eystra. Þar var meðal annars rætt um íslenskunám, félagslega þátttöku og tengsl við nærsamfélagið. Tungumálahindranir reyndust vera ein helsta hindrunin fyrir meiri þátttöku í félagsstarfi og fram kom að fólk vildi meðal annars meiri þjálfun í töluðu máli.

Orðaforði sem nýtist í daglegu lífi

Þekkingarnetið hefur áður unnið eftir svipaðri hugmyndafræði í verkefninu Farkennaranum, þar sem íslenskukennslan var færð inn á vinnustaði og lögð áhersla á þann orðaforða sem starfsfólk þurfti þar.

„Þar notuðum við orðaforðann sem fólk notar á vinnustaðnum. Nú erum við að vinna með orðaforðann sem tengist íþróttum og frístundastarfi,“ segir Ingibjörg.

Hún segir rannsóknina hafa sýnt að margir vilji bæði læra meira af töluðu máli og öðlast kjark til að byrja sjálfir að tala íslensku. Þá geti verið erfitt fyrir fólk sem ekki þekkir íslenskt samfélag að átta sig á því hvernig íþrótta- og frístundastarf barna er uppbyggt og hvert hlutverk foreldranna er.

„Fólk þekkir ekki endilega menninguna okkar. Sums staðar í heiminum fer fólk til dæmis ekki einu sinni inn á skólalóð hjá börnunum sínum. Okkur vantaði verkfæri til að ná betri tengingu.“

Þess vegna verður kennslan ekki bundin við eina kennslustofu. Hugmyndin er meðal annars að fara með þátttakendur í Vallarhúsið og vinna þar með þjálfurum, heimsækja Frístund og tengja íslenskunámið beint við þær aðstæður sem fólk þarf að takast á við.

Abler kennt á íslensku

Eitt af því sem verður tekið fyrir er abler, kerfið sem mikið af íþrótta- og frístundastarfi barna fer í gegnum.

„Við ætlum að kenna fólki á abler og nota tækifærið um leið til að kenna íslenskuna í gegnum raunveruleg dæmi,“ segir Ingibjörg.

Einnig er unnið að námsefni sem þátttakendur geta nýtt heima. Kennaranemi sem starfað hefur með Þekkingarnetinu í sumar vinnur að því ásamt Ingibjörgu og samstarfsfólki.

„Við erum búnar að taka upp myndbönd inni á vellinum, í Frístund og víðar. Við höfum líka búið til borðspil og fengum drónamynd þar sem farið er frá skólanum yfir í Frístund, sundið og á fótboltavöllinn. Nú erum við að útfæra hvernig við getum nýtt þetta allt saman í kennslunni.“

Saman í málinu hefst 1. september og stendur í tíu vikur, alls 40 kennslustundir. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 17 til 18.30 og er Berglind Ólafsdóttir kennari námskeiðsins. Það er ætlað bæði byrjendum og lengra komnum og foreldrum, þjálfurum, kennurum og öðrum sem tengjast íþrótta- og frístundastarfi barna.

Námskeiðið er ókeypis og er verkefnið styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og unnið í samstarfi við Norðurþing og Völsung.

Nýjast