Frá flugeldasýningu á Pollinum Myndir Linda Ólafsdóttir
Linda Ólafsdóttir er ein af þessum snillingurm sem tekur maklaust góðar myndir. Hún samþykkti góðfúslega aðvið settum þessar glæsilegu myndir hennar á vefinn.
Helga Ösp Jónsdóttir hefur tekið við starfi skógarvarðar í Vaglaskógi og er hún fyrsta konan til að gegna slíku starfi hjá opinberri skógræktarstofnun á Íslandi. Hún er menntuð plöntusjúkdómafræðingur og starfaði áður hjá Landi og skógi. Helga segist hafa verið afar vel tekið af starfsfólki sem hún lýsir sem einvalaliði á vef Lands og skóga.
Geðheilsuteymi barna hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands hefur fengið veglega gjöf frá Lionsklúbbnum Ylfu. Gjöfin samanstendur af skynörvunarvörum og fiktileikföngum sem nýtast vel í meðferð barna og unglinga.
Mærudagar eru ein af skemmtilegustu hefðum Húsavíkur og stemningin byrjar löngu áður en hátíðin sjálf hefst. Þegar fánarnir, litirnir og skreytingarnar fara að birtast um bæinn vitum við að Mærudagar eru að nálgast.
Axel Flóvent nálgast sköpun líkt og lífið sjálft – með flæði, opnum huga og í stöðugri þróun. Með ljóðrænum þjóðlagatón og tilfinningaríkri alt-pop nálgun fangar hann minningar og augnablik í lagi og texta. Á laugardag nk. spilar Axel í Samkomuhúsinu á Húsavík góða blöndu af gömlu og nýju óútgefnu efni, tónleikarnir hefjast klukkan 20:00