Sýningarnar fjalla allar á einhvern hátt um menninguna sem hlýst af sauðkindinni, afurðum eða ásjónu. Oft eru aðrir listamenn kallaðir til sem gefa víðara sjónarhorn á verkefnið. "Tvílembd ær undir barði " er heiti þessa veggverks sem Aðalheiður sýnir nú, og er þetta 10. sýningin í röðinni. Áður hefur hún fjallað um réttina, slátrun, innmat, kind á fóðrm og sauðburð sem stendur yfir á Seyðisfirði. Hægt er að fylgjast með verkefninu á heimasíðunni http://www.freyjulundur.is/