Á leikskólanum Iðavelli ræður margbreytileikinn ríkjum

Á leikskólanum Iðavelli er hlutfallið af tvítyngdum og fjöltyngdum börnum það hæsta á Akureyri. Mynd…
Á leikskólanum Iðavelli er hlutfallið af tvítyngdum og fjöltyngdum börnum það hæsta á Akureyri. Myndin er aðsend.

Leikskólinn Iðavöllur á Akureyri hlaut nýverið styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins eins og komið hefur fram hér á dagskráin.is. Um er að ræða styrk sem nemur 2,3 milljónum króna til að koma í framkvæmd verkefninu: „Það er leikur að læra íslensku – Að koma til móts við nemendur af erlendum uppruna.“

Á leikskólanum Iðavelli er hlutfallið af tvítyngdum og fjöltyngdum börnum það hæsta á Akureyri. Með tvítyngi og fjöltyngi er átt við að ef barn lærir tvö eða fleiri tungumál samtímis verða þau öll að móðurmál, þó aðeins ef bæði tungumálin eru notuð regulega og nægilegt innlegg fæst úr málumhverfinu. „Við erum með rosalega hátt hlutfall eða 24% eins og staðan er í húsinu í dag,“ segir Iris Rún Andersen sérkennslustjóri á Iðavöllum í samtali við dagskrána.is. mynd tekin á iðavöllum

Iris segir að verkefnið sé í takt við þá vakningu sem hefur verið í samfélaginu undanfarið um stöðu læsis barna á Íslandi. „Okkur langaði að gera þetta aðeins markvissara, vinnuna með þessum fjöltyngdu börnum. Við erum að sjá núna á börnum sem eru komin lengra eins og í grunnskóla og framhaldsskóla, að þessum málaflokki hefur ekki verið almennilega sinnt. Markmið okkar með þessu þróunarverkefni er að efla orðaforðann og þá erum við að hugsa um íslenskuna. Tjáningu og skilning, gera þetta allt í bland við leikinn, efla félagsþroskann með tilliti til margbreytileikans. Enda má segja að við séum fjölþjóðlegur leikskóli,“ segir Iris.

Verkefnið leggst mjög vel í Irisi sem segir að vinnan við það fari fljótlega af stað. Hólmfríður Árnadóttir kemur að verkefninu sem utanaðkomandi fagaðili hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.

„Þetta er skóli fyrir alla þannig að við viljum að allir upplifi sig sem hluta af barnahópnum og það auðveldar öll tjáskipti,“ Segir Iris að lokum. /EPE

fjölbreytileiki á Iðavelli

fjölbreytileiki á Iðavelli

Nýjast