Minningarsjóður um Arnar Gunnarsson, kennara og handknattleiksþjálfara stofnaður

Frá vinstir, Sólveig, Stefán, Samúel og Arnar Samsett aðsend mynds
Frá vinstir, Sólveig, Stefán, Samúel og Arnar Samsett aðsend mynds

Systkini Arnars stofna minningarsjóð til eflingar ungu handboltafólki!

Minningarsjóður um Arnar Gunnarsson, kennara og handknattleiksþjálfara sem lést 3. mars 2023 var formlega stofnaður í dag, 2. apríl 2024. Það eru systkini Arnars sem standa að stofnuninni, en á þessum degi fyrir ári síðan fannst Arnar látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ.

,,Við erum bæði stolt og hrærð á þessum degi þegar minningarsjóðurinn um Adda bróður er stofnaður, honum til heiðurs og höldum við þannig minningunni, um góðan dreng og hans störf í þágu handboltans, á lofti”, segir Samúel Ívar Árnason, bróðir Arnars.

Sjóðnum er ætlað að styðja við unga og efnilega handboltaiðkendur sem stefna hátt, sem og að auka fræðslu til foreldra og forráðamanna barna í íþróttum. Sjóðurinn hefur sömuleiðis þann tilgang að heiðra minningu Arnars. Hægt er að leggja inn frjáls framlög á reikning hjá Sparisjóði Höfðhverfinga þar sem Arnar var viðskiptavinur um árabil.

Minningarsjóður um Adda: 1187 05 255000 Kennitala: 6503241450

Nánari upplýsingar veita Samúel Ívar Árnason s. 844 1175 eða Árni Stefánsson s. 8627576


Athugasemdir

Nýjast