Hringferð Volaða Lands

Volaða Land, kvikmynd Hlyns Pálmasonar verður frumsýnd hér á landi 10. mars næstkomandi. Í framhaldinu hyggst leikstjórinn ásamt aðalleikurunum þeim Ingvari E. Sigurðssyni og Elliott Crosset Hove halda í hringferð um landið með myndina. Þannig er ætlunin að hafa sérstakar sýningar þar sem áhorfendum gefst tækfiæri til að spjalla við leikstjórann og leikarana að sýningu lokinni. Þessar sýningar munu fara fram þann 10. mars á Ísafirði, 11. mars á Patreksfirði og á Akureyri og 12.mars á Seyðisfirði.  

 Volaða Land, sem er þriðja kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd, segir frá ungum dönskum presti sem ferðast til Íslands í þeim tilgangi að reisu kirkju og ljósmynda náttúruna og íbúa landins. Hópur heimamanna leiðir unga prestinn í gegnum harðneskjulegt landið. Þegar líður á ferðalag þeirra missir presturinn smá saman tökin á raunveruleikanum og eigin trúfestu. 

 Myndin var frumsýnd á Cannes síðastliðið vor við standandi lófaklapp. Þaðan hefur myndin ferðast víða um lönd og hlotið mikið lof gagnrýnenda í Frakklandi, Danmörku og Bandaríkjunum. Gagnrýnandi Morgunblaðsins gaf einnig myndinni 5 stjörnur og sagði hana bestu mynd ársins. Aðrir erlendir miðlar hafa sagt hana stórbortið listaverk, fjársjóð sem minni á margar bestu myndir kvikmyndasögunnar.

 „Algjört stórvirki“ - Screen Daily , „Mögnuð“ - La Journal du Dimanche , „Epískt ferðalag sem minnir á verk sumra bestu leikstjóra kvikmyndasögunnar“ - International Cinephile Society, „Kvikmyndin sem hefði átt að hreppa Gullpálmann“ - Slate , „Óviðjafnanleg“ - Jyllands Posten

 Þess má geta að Volaða Land hlaut nýlega 11 tilnefningar til Edduverðlaunanna 2023.  Myndin hlýtur tilfnefningu fyrir kvikmynd ársins. Hlynur Pálmason fyrir leikstjóra ársins og handrit ársins. Ingvar E. Sigurðsson fyrir leikari ársins í aðalhlutverki. Hilmar Guðjónsson fyrir leikari ársins í aukahlutverki. En aðrar tilnefningar voru fyrir  búninga ársins, gervi ársins, myndatöku ársins, tónlist ársins, klippingu ársins og hljóð ársins. En einnig má geta þess að danski leikarinn Elliett Crossett Hove sem fer með aðalhlutverk í Volaða Landi var tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir hlutverk sitt í myndinni. 

 Sem fyrr segir verður kvikmynd frumsýnd 10.mars og eru íbúar á Ísafirði, Patreksfirði, Akureyri og Seyðisfirði þeir fyrstu sem eiga þess kost að ræða við leikstjóra og leikara myndarinnar að sýningu lokinni

Frá þessu segir í tilkynningu frá aðstandendum Volaðs lands.


Athugasemdir

Nýjast