Gönguvika á Akureyri

Ljósmynd: María H. Tryggvadóttir.
Ljósmynd: María H. Tryggvadóttir.

Árleg gönguvika á Akureyri hófst í gær þar sem boðið er upp á kvöldgöngur um fjölbreytta staði í bæjarlandinu. Gönguvikan er samvinnuverkefni Akureyrarstofu og Ferðafélags Akureyrar. Allar göngurnar byrja kl. 19.00 og taka á bilinu tvær til fjórar klukkustundir.

Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig á heimasíðu Ferðafélags Akureyrar.  Þetta er ellefta árið í röð sem gönguvikan er haldin og hefur aðsókn í göngurnar undanfarin ár verið mjög góð. Allar nánari upplýsingar er að finna á visitakureyri.is.


Athugasemdir

Nýjast