Flugdagur Flugsafnsins og 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar

Hin árlegi Flugdagur Flugsafns Íslands á Akureyrarflugvelli fer fram morgun  laugardag    Mynd  Hörð…
Hin árlegi Flugdagur Flugsafns Íslands á Akureyrarflugvelli fer fram morgun laugardag Mynd Hörður Geirsson

Flugdagur Flugsafns Íslands hefur verið haldinn árlega síðan árið 2000 og hefur ávallt verið vel sóttur. Í ár fögnum við sérstaklega 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar og mun hún taka virkan þátt í deginum með okkur að þessu sinni.

Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra mun setja daginn kl. 13:15 og Benóný Ásgrímsson fyrrum þyrluflugstjóri Landhelgisgæslunnar flytur stutt ágrip af sögu flugsveitar LHG áður en að flugsýningin okkar hefst með látum kl. 14.

Gestum okkar gefst einnig kostur á að kynna sér flugnám, svifflug og flugmódelsmíði svo eitthvað sé nefnt.  Vélflugfélag Akureyrar stendur fyrir flugkomu á Melgerðismelum í kvöld .

Óhætt er að segja að á þessum sýningum gefst gott tækifæri til þess að njóta þess sem flugið hefur upp á að bjóða.

Á laugardag, flugsýningardaginn verður gengið inn á sýningarsvæðið um aðalinngang Flugsafnsins, aðgangseyri er stillt í hóf og er aðeins 1000 kr. fyrir 13 ára og eldri.

Nýjast