Stephany og Tryggvi íþróttafólk Akureyrar

Sandra Stephany Mayor með verðlaunin. Mynd/Þórir Tryggason.
Sandra Stephany Mayor með verðlaunin. Mynd/Þórir Tryggason.

Körfuknattleiksmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason og knattspyrnukonan Sandra Stephany Mayor eru íþróttafólk Akureyrarbæjar árið 2017. Úrslitin voru tilkynnt við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi í gær.

Sandra Stephany Mayor var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Þórs/KA árið 2017. Hún var valinn besti leikmaður Pepsi deildar kvenna. Hún skoraði 19 mörk í 18 leikjum með liðinu og var markahæsti leikmaður deildarinnar. Sandra er einnig lykilmaður í Mexíkóska landsliðinu.

Tryggvi Snær var lykilmaður í úrvalsdeildarliði Þórs í körfubolta sem endaði í 8. sæti Dominos deildarinnar síðastiliðið vor. Hann tók þátt í landsliðsverkefnum bæði með A-landsliði Íslands og U20 ára landsliðinu. Með U20 ára landsliðinu keppti hann í A-deild á Evrópumótinu og var valinn í 5-liða úrvalslið keppninnar og var framlagahæstur allra leikmanna. Tryggvi hóf svo atvinnumannaferil sinn í haust með liði Valencia á Spáni en Valencia eru ríkjandi Spánarmeistarar.

Systir Tryggva Snæs tók við verðlaununum fyrir hans hönd

Bryndís Rún Hansen var í 2. sæti í íþróttakona ársins en hún varð fjórfaldur Íslandsmeistari á árinu og vann til sex gullverðlauna á smáþjóðaleikunum í San Marínó. Viktor Samúelsson varð annar í kjöri á íþróttamanni ársins. Viktor er einn farsælasti lyftingamaður Íslands. Hann varð Íslandsmeistari á stigum fjórða árið í röð og keppti bæði á EM og HM í kraftlyftingum. Á EM vann hann til silfurverðlauna fyrir bekkpressu.

Júdófólkið Alexander Hreiðarsson og Anna Soffía Víkingsdóttir lentu í þrjiða sæti í kjörinu. Anna Soffía var valinn júdókona ársins hjá Júdósambandi Íslands og Alexander var valinn efnilegast júdómaður landsins.

 


Athugasemdir

Nýjast