Góður gangur hjá Golfklúbbi Akureyrar

Séð yfir hluta Jaðarsvallar.   Mynd Golfklúbbur Akureyrar
Séð yfir hluta Jaðarsvallar. Mynd Golfklúbbur Akureyrar

Óhætt er að fullyrða að góður gangur sé hjá Golfklúbbi Akureyrar um þessar mundir.  Jaðarsvöllur  hefur að sögn þeirra sem best til þekkja sjaldan eða aldrei verið jafn góður og er óhætt að segja að fólk kunni vel að meta  því mikið er spilað á vellinum þessa dagana og á tíðum komast færri að en vilja.  Hið rómaða Artic Open for fram um helgina í 37 skiptið  og voru 252 keppendur sem tóku þátt að þessu sinni.  Veðrið lék við golfara en þeir komu sem endranær víðsvegar að úr heiminum. Í þetta sinn voru 42 erlendir golfarar að spila á mótinu.   Nú þegar  er lagt komið með að fylla mótið að ári.

Undanfarin ár hefur Golfklúbbur Akureyrar lagt  mikið í unglingastarfið og hefur sú vinna skilað  bæði auknum fjölda barna og unglinga  og  auðvitað líka betri kylfingum.  Þetta má sjá að þeirri staðreynd að Golfklúbbur Akureyrar sendi um síðastliðna helgi 7 sveitir í Íslandsmót golfklúbba, þrjár í 14 ára og yngri, eina í 15-16 ára og þrjár í 21 árs og yngri. 

Stelpurnar í 14 ára og yngri gerðu sér lítið fyrir og enduðu í 2.sæti, sveitina skipuðu þær Birta Rán Víðisdóttir, Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Ragnheiður Svava Björnsdóttir. Þá endaði önnur sveit GA drengja í 3.sæti og hin í 8. sæti. Sveitin sem endaði í 3. sæti var skipuð þeim Arnari Frey Viðarssyni, Ágústi Már Þorvaldssyni, Baldri Sam Harley, Agli Erni Jónssyni og Kristófer Áka Aðalsteinssyni. Hina sveitina skipuðu þeir Askur Bragi Heiðarsson, Finnur Bessi Finnsson, Óskar Pálmi Kristjánsson og Patrekur Máni Ævarsson. 

Í flokki 15-16 ára sendi GA eina drengjasveit sem var skipuð þeim Heiðari Kató Finnssyni, Ólafi Kristni Sveinssyni, Ragnari Orra Jónssyni, Skúla Friðfinnssyni og Viktori Skugga Heiðarssyni, strákarnir spiluðu feyki gott golf og enduðu í 2.sæti, unnu alla sína leiki nema einn. 

Í flokki 19-21 árs sendi GA tvær drengjaveitir GA-Jaðar og GA-Stóri Boli og eina stúlknasveit og voru þær skipaðar eftirtöldum leikmönnum
GA Jaðar: Mikael Máni Sigurðsson, Patrik Róbertsson, Starkaður Sigurðsson og Valur Snær Guðmundsson
GA Stóri Boli: Lárus Ingi Antonsson, Óskar Páll Valsson, Skúli Gunnar Ágústsson og Veigar Heiðarsson
GA - stúlkur: Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Kara Líf Antonsdóttir, Kristín Lind Arnþórsdóttir og Lana Sif Harley

GA Stóri Boli gerði sér lítið fyrir og endaði í 2.sæti, töpuðu úrslitaleiknum við GR naumlega 2/1, GA Jaðar endaði í 5.sæti og þá endaði stúlknasveit okkar í 4. sæti.  Þeir  Skúli Gunnar  Ágústsson og Veigar Hreiðarsson valdir svo valdir í piltalandsliðið sem tekur þátt í EM pilta  sem fram fer í Slóvakíu 12-15 júli næst komandi.

 

 


Athugasemdir

Nýjast