Anna María sló fimm Íslandsmet á EM

Anna María Alfreðsdóttir náði frábærum árangri á EM í Slóveníu. Mynd/archery.is
Anna María Alfreðsdóttir náði frábærum árangri á EM í Slóveníu. Mynd/archery.is

Brons úrslita leiknum á EM í Slóveníu á milli Önnu Maríu Alfreðsdóttir og Ipek Tomruk frá Tyrklandi var að ljúka rétt í þessu. Bogfimivefurinn archery.is greinir frá þessu

Þar kemur fram að leikurinn hafi byrjaði mjög jafn. Anna María byrjaði einu stigi undir í fyrstu umferðinni 28-29. Stelpurnar jöfnuðu svo næstu umferð báðar með fullkomið skor 30-30 og jöfnuðu svo aftur umferð þrjú 29-29 og staðan var því 87-88 í leiknum og tvær umferðir eftir. Í fjórðu umferð náð sú Tyrkneska að auka forskotið í 3 stig Anna skaut 27 og sú Tyrkenska 29. Anna átti svo flotta loka umferð 29 en sú Tyrkneska gaf ekki færi á sér og skaut fullkomið skor í síðustu umferðinni 30 og tók brons leikinn 147-143.

„Þetta var mjög flott frammistaða hjá Önnu bæði í brons leiknum og á mótinu í heild sinni en svona er þetta þegar verið er að keppa á hæsta stigi minnsti munur er munurinn á sigri eða tapi og dagsformið segir oft meira til um úrslit en getustig,“ segi í frétt arhery.is.

Anna María sló einnig fimm Íslandsmet á EM:

  • Íslandsmet í útsláttarkeppni trissuboga kvenna U21
  • Landsliðs Íslandsmet í undankeppni liða trissuboga kvenna U21 og sama met í Opnum flokki (fullorðinna)
  • Landsliðs Íslandsmet útsláttarkeppni liða trissuboga U21 og sama met í Opnum flokki (fullorðinna)



Athugasemdir

Nýjast