Ýsa, hlunkar og bóndakökur

Drífa Mattíhasdóttir.
Drífa Mattíhasdóttir.

Drífa Matthíasdóttir sér um matarkrókinn að þessu sinni og kemur hér með girnilegar uppskriftir þar sem ýsa, hlunkar og bóndakökur verða á borðstólnum.

Ýsa í raspi að hætti Hannesar og Hlunkar

3-4 ýsuflök      

2 dl hveiti

2-3 egg

3 dl Bónus rasp

Sítrónupipar

Aromat krydd

Hvítur pipar

Salt

Heima smjörl.

Aðferð: Takið þrjá djúpa diska, setjið hveiti í einn, egg í annan og raspinn í þriðja. Kryddið raspinn með salti og pipar, aromat og sítrónupipar.  Það er líka bráðnauðsynlegt að setja sítrónupipar í hveitið og eggin. Skerið fiskinn í þunnar sneiðar og veltið honum fyrst upp úr hveitinu, síðan egginu og loks raspinum. Steikið fiskinn upp úr smjörlíki á pönnu við meðalhita.  Strákunum mínum finnst fiskurinn alltaf miklu betri þegar pabbi þeirra gerir hann því hann bætir alltaf ómældri ást og umhyggju við.

Meðlæti: Soðnar kartöflur, kokteilsósa og laukur steiktur á pönnu (ég set alltaf smá sykur á laukinn þegar hann er alveg að verða steiktur).

Ef kvöldmaturinn er borðaður á réttum tíma sem gerist að vísu ekki oft á mínu heimili, vegna  fótboltaæfinga, þá er alveg upplagt að fá sér kvöldkaffi eins og var í sveitinni í gamla daga. Þá mæli ég með nýbökuðum Hlunkum og ískaldri nýmjólk.

Hlunkar

250 gr. smjörl 

2 dl. sykur

2 dl púðursykur   

2 egg

5 dl hveiti

1 tsk natron (matarsódi)

1 tsk salt

1 tsk vanillusykurr eða vanilludropar

300 gr. suðusúkkulaði  - brytjað

Bakað við 180°c í c.a 10 mín

Smjörlíkið er hálf brætt, sykur og púðursykur hrært saman við og síðan eggin. Því næst þurrefni og súkkulaðið í restina. Sett með matskeið á plötu klædda bökunarpappír,  gott bil á milli því kökurnar renna út.

Best er að borða þá heita með ískaldri nýmjólk.

Bóndakökur – eru líka góðar með kvöldkaffinu

9 dl hveiti

3 dl haframjöl

1 ½ tsk lyftiduft

300 gr. smjörl

3 dl sykur

3 msk síróp

1 egg

Aðferð: Allt hnoðað saman og velt í lengjur sem eru svo skornar í bita, síðan hnoða ég kúlur og set á plötu með bökunarpappír, þrýsti ofaná með buffhamri til að fá skemmtilegt munstur. Bakað í 8-10 mín við 200°c í blæstri.

„Ég skora á frænda minn Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfara íslandsmeistara Þórs/KA að koma með einhverjar gómsætar uppskriftir í næstu viku.”

 

Nýjast