Yfirfullt hjá VMA

Verkmenntaskólinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Verkmenntaskólinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Um 1330 nemendur hefja nám við Verkmenntaskólann á Akureyri sem hefst á þriðjudaginn kemur. Þetta er svipaður fjöldi og í fyrra en þá hófu 1370 nemendur nám og var það metfjöldi hjá skólanum. Vísa þurfti um hundrað umsóknum frá í vor. „Líkt og í fyrra erum við að fara af stað með yfirfullan skóla,” segir Hjalti Jón Sveinsson, sem snýr aftur til starfa sem skólameistari eftir árs leyfi.

Að sögn Hjalta er vel sótt í allar brautir skólans, bæði í bóknám og iðngreinar. Aðspurður segir hann það ekki bitna á kennslunni að yfirbókað sé í skólann. „Þetta hefur tekist bærilega hingað til þrátt fyrir allt og ég á von á svo verði áfram,” sagði hann.

Í Menntaskólanum á Akureyri er áætlað að heildarfjöldi nemenda verði 770 en þar verður skólasetning ekki fyrr en um miðjan september. Þetta er svipaður fjöldi og var í fyrra en nýnemar verða 217 talsins.

Nýjast