VMA útskrifar 80 nemendur

Áttatíu nemendur voru brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akaureyri í gær. Hjalti Jón Sveinsson skólameistari sagði að mikill kraftur hefði verið í skólastarfinu í haust. „Þrátt fyrir áralangan samdrátt í fjárframlögum til skólans og sparnaðaraðgerðir af ýmsu tagi hefur okkur tekist að bjóða yfir 1300 nemendum nám í haust, sem er nánast sami fjöldi og á síðasta ári, auk 500 nemenda í fjarnámi. Við höfum borið gæfu til þess að halda úti óbreyttu námsframboði og reyndar höfum við sótt í okkur veðrið og bjóðum nú á ný upp á nám í rafeindavirkjun sem mikil þörf var orðin fyrir,“ sagði Hjalti Jón. Veitt voru fjölmörg verðlaun fyrir góðan námsárangur.

Arnar Freyr Baldursson fyrir bestan árangur í viðskiptagreinum á stúdentsprófi.

Birna Hólmgeirsdóttir fyrir framúrskarandi árangur í þýsku á stúdentsprófi og einnig fyrir

góðan árangur í dönsku.

Guðrún Ágústa Ágústsdóttir fyrir afburða námsárangur í mataræknanámi.

Guðlaug Þorsteinsdóttir fyrir framúrskarandi árangur í textílgreinum á listnámsbraut.

Hannes Heiðar Þórólfsson fyrir bestan árangur í faggreinum rafiðna.

Helena Karen Árnadóttir fyrir bestan árangur í íslensku. Einnig fyrir góðan árangur í þýsku á stúdentsprófi.

Íris Þengilsdóttir fyrir bestan árangur í raungreinum á stúdentsprófi.

Kristín Halla Eiríksdóttir fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi.

Krstín fyrir frábæran árangur í sérgreinum íþróttabrautar.

Sigrún Lind Sigurðardóttir  fyrir bestan árangur á myndlistargreinum á listnámsbraut.

Unnur Arnsteinsdóttir fyrir bestan árangur á lokaprófi og í sjúkraliðagreinum. Hún hlaut einnig viðurkenningur fyrir framúrskarandi meðaleinkunn.

Nýjast