Við vorum með jafnfréttisfulltrúa í fullu starfi í mörg ár, fyrst sveitarfélaga og Akureyri var í forystu í þessu málum. Síðan þurfti þessi sami fulltrúi að fara sinna öðrum málum og engin skilgreindur tími sem hann átti að eyða í starf sitt sem jafnréttisfulltrúi, segir Logi Már Einarsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri. Logi hefur viðrað þá hugmynd að bærinn ráði jafnréttisfulltrúa í fullt starf, en í dag er einungis hlutastarfandi aðili sem gegnir stöðunni.
Ég held að það sé full ástæða til að taka þetta upp að nýju. Við erum ekkert komin á leiðarenda í þessum efnum. Það liggur fyrir núna að við ásamt öllum öðrum sveitarfélögum landsins og ríkisvaldinu erum að taka upp kynjaða hagstjórn þar sem menn horfa til jafnréttismála þegar ákvarðanir eru teknar um stefnumótun. Ég held að þessi fulltrúi myndi nýtast vel, segir Logi.
Logi bætist þar með í hóp með Andreu Hjálmsdóttur bæjarfulltrúa Vg sem vakti athygli á málinu í fyrra og óskaði eftir að ráðinn yrði jafnréttisfulltrúi í fullt starf. Tillögunni var vísað til Samfélags- og mannréttindaráðs en þar sem lítið gerðist fylgdi Andrea því eftir í bókun bæjarráðs í sumar.