Víkingur lagði Þór að velli

Mynd: Sævar Geir.
Mynd: Sævar Geir.

Víkingur Reykjavík gerði góða ferð norður á Akureyri er liðið skellti Þór, 2-0, á Þórsvelli í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en gestirnir náðu forystunni á 79. mínútu og þar var að verki Aron Elís Þrándarson er hann skoraði með skalla. Þórsarar reyndu allt sitt til þess að jafna metin en það voru Víkingar sem áttu lokaorðið er Patrik Snær Atlason gulltryggði sigur liðsins með marki tveimur mínútum fyrir leikslok.

Þetta var aðeins annar sigurleikur Víkings á tímabilinu sem með sigrinum fer í sjötta sæti deildarinnar með tíu stig. Þór hefur þrettán stig og fellur niður í fjórða sæti og hefur aðeins fengið eitt stig af síðustu níu mögulegum.

Nýjast