Verkmenntaskólinn á Akureyri ásamt stéttarfélögum og aðilum úr atvinnulífinu í nærumhverfi skólans standa að Viku Málm- og véltæknigreina frá 17. til 22. september næstkomandi.
Dagskráin er í stórum dráttum þessi:
Mánudagur 17. september: kl. 16-19; Málþing í VMA. Framtíðarsýn atvinnulífs og skóla samvinna samfélagsins til framtíðar. Á málþinginu verða stutt erindi frá atvinnurekendum, núverandi og fyrrverandi nemendum skólans og fulltrúa frá Samtökum iðnaðarins. Íkjölfarið verða umræður með Þjóðfundarsniði. Stofnað verður fagráð í málm- og véltæknigreinum og Hollvinasamtök VMA.
Þriðjudagur 18. september: kl. 17-19; IÐAN kynnir starfsemi sína í Alþýðuhúsinu 4. hæð.
Miðvikudagur 19. september: 14-18; Safna og sögudagur, ýmis söfn er tengjast
greinunum hafa opið fyrir almenning í boði FMA og VM.
Fimmtudagur 20. september: 18-20; Sögusigling á Húna II í boði Slippsins.
Föstudagur 21. september: 12-16; Æfingar í suðuhermi í VMA. Grunnskólanemendur sérstaklega velkomnir.
Laugardagur 22. september: 11-16; Opið hús á málmsmíðaverkstæði og í vélstjórnardeild VMA í tilefni af 30 ára kennsluafmæli á Eyrarlandsholti.