Vígsluafmæli Glerárkirkju

Glerárkirkja/Mynd Hörður Geirsson
Glerárkirkja/Mynd Hörður Geirsson
Þann 6. desember eru 20 ár síðan Glerárkirkja var vígð og verður tímamótanna minnst með  afmælishátíð frá föstudeginum 7. desember til sunnudagsins 9. desember næstkomandi.

Föstudaginn 7. desember kl. 20:00 verður kaffihúsakvöld í umsjón kvenfélagsins Baldursbrár með lifandi tónlist með aðventuívafi. Þá verður einnig opnuð listsýning Díönu Bryndísar í andyri kirkjunnar. 

Laugardaginn 8. desember kl. 16:00 verður hátíðardagskrá í tali og tónum þar sem dr. Hjalti Hugason prófessor í kirkjusögu flytur erindið „Samfylgd þjóðar og kristni í þúsund ár“ og að erindi loknu verða umræður yfir kaffibolla.

Sunnudaginn 9. desember verður eitthvað við allar hæfi því kl 11:00 verður afmælis sunnudagaskóli, kl. 14:00 verður hátíðarmessa þar sem biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar og Kór Glerárkirkju flytur Krýningarmessu eftir W.A. Mozart og kl. 20:00 verður bíókvöld æskulýðsstarfsins

Nokkrir punktar úr sögu Glerárkirkju

Glerárkirkja var vígð þann 6. desember árið 1992 en þá var kirkjan öll fullbúin og kirkjuskipið þar með tekið í notkun.  Í raun má segja að um tvöfalt vígsluafmæli sé að ræða þar sem suðurálman var tekin í notkun 16. febrúar árið 1987 og því 25 ár síðan sá hluti kirkjunnar var vígður.

Árið 1954 varð Glerárhverfi hluti af Akureyri og á sjötta áratugnum hófst umræða um mögulega kirkjubyggingu á holtinu austan við íþróttasvæði Þórs en bið varð á framkvæmdum.

Árið 1981 var Glerárprestakall stofnað og síðar sama ár var séra Pálmi Matthíasson kjörinn fyrsti prestur prestakallsins. Til að byrja með fór kirkjustarfið fram í gömlu Lögmannshlíðarkirkjunni og í Glerárskóla.

Fyrsta skóflustunga nýrrar kirkju var tekin þann 4. júní 1984 og tveimur og hálfu ári síðar eða 15. febrúar 1987 var suðurálma kirkjunnar vígð en hún var útbúinn með þeim hætti að þar var hægt að hafa guðsþjónustu og aðrar kirkjulegar athafnir.  Tæplega sex árum síðar var byggingu kirkjunnar í heild sinni lokið og vígsludagurinn 6. desember árið 1992 rann upp.

Nánari upplýsingar um hátíðardagskrána má finna á heimasíðu Glerárkirkju - www.glerarkirkja.is

Nýjast