Í tilefni af vígslu Laugalandsskógar sem ,,Opins skógar verður efnt til hátíðar- og skemmtidagskrár fyrir alla fjölskylduna sunnudaginn 26. ágúst nk. kl. 16:00. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, mun opna skóginn formlega. Laugalandsskógur er í Hörgárdal, í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri. Þar er búið að leggja stíga og setja upp skilti og öll aðstaða til útivistar og náttúruskoðunar eru til fyrirmyndar og er öllum boðið að koma og eiga saman góða stund í skóginum, er segir í fréttatilkynningu.
Opinn skógur er samstarfsverkefni skógræktarfélaga, Arionbanka og Skeljungs. Markmiðið með verkefninu Opinn skógur er að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir, sem eru í umsjón skógræktarfélaga. Áhersla er lögð á að aðstaða og aðgengi verði til fyrirmyndar og á að miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu, svo að almenningur geti nýtt sé Opinn skóg til áningar, útivistar og heilsubótar. Laugalandsskógur er þrettándi skógurinn sem er gerður að opnum skógi.