Viðtökur framar björtustu vonum

Rúnar Friðriksson og Steingrímur Magnússon
Rúnar Friðriksson og Steingrímur Magnússon

„Viðtökur hafa verið mjög góðar, framar björtustu vonum,“ segja þeir Rúnar Friðriksson og Steingrímur Magnússon sem eiga og reka fyrirtækið Arcticus Sea Product á Akureyri, en það var stofnað síðastliðið haust og er framleiðsla þess nú komin á fullt skrið og gengur vel. Félagið sérhæfir sig í framleiðslu á fiskafurðum. Einkum hefur sjónum verið beint að innanlandsmarkaði, en í þessari viku fer prufusending út fyrir landsteinana, þannig að fyrsta skrefið í útflutningi félagins hefur þegar verið tekið.

„Meðfram almennri sölumennsku og markaðssetningu unnum við alla tíð með það í huga að fara sjálfir út í framleiðslu af einhverju tagi og fyrsta hugmyndin sem varð að veruleika var félagið Eldfjallabrugg, fyrsta íslenska fyrirtækið sem hóf framleiðslu á gosbjór,“ segir Rúnar.

Nú þegar eru þrjár vörutegundir komnar á markað, fiskur í orlydeigi, fiskibollur og einnig grænmetisbuff. Vörurnar hafa undanfarnar vikur verið í sölu hjá stærri kaupendum, m.a. hjá mötuneytum en eru nú nýkomnar inn á almennan smásölumarkað, m.a. hjá Samkaupakeðjunni, Hagkaup og Krónunni. Vörunum hefur verið vel tekið „og við erum auðvitað himinlifandi yfir því,“ segir Steingrímur. „Okkar vörur eru tilbúnar til eldunar og það mælist mjög vel fyrir, enda margir í tímaþröng og þykir gott að grípa vörur af því tagi í kvöldmatinn, en jafnframt höfum við að leiðarljósi að okkar framleiðsluvörur séu hollar og góðar og á sanngjörnu verði.“

Fyrsta sending út í vikunni

Áhugasamur kaupandi í útlöndum hefur sett sig í samband við fyrirtækið og hefur áhuga fyrir að kaupa umtalsvert magn af afurðum frá félaginu. Fyrsta prufusendingin fer utan í vikunni.

Þeir félagar vilja á þessari stundu ekki greina frá hver hugsanlegur kaupandi er, en segja að ef allt gangi að óskum hafi hann áhuga fyrir að kaupa mikið magn. „Það er í augsýn að við náum góðum samning og að fyrirtækið fari í útflutning í nánustu framtíð,“ segja þeir.

Nýjast