Fyrstu dagana nota ég væntanlega til að ræða við mitt nánasta samstarfsfólk, bæði hérna í Reykjavík og um land allt, segir Kristján Kristján Þór Júlíusson nýr heilbrigðisráðherra.
Já, ég er mjög sáttur við þær áherslur sem lagðar eru fram í stefnuyfirlýsingunni. Með myndun ríkisstjórnarinnar hefst ný sókn í þágu lands og þjóðar. Leiðarljós ríkisstjórnarinnar er bættur hagur heimilanna í landinu og efling atvinnulífs. Besta leiðin til að ná árangri er að efna til víðtæks samráðs við þjóðina og ég er sannfærður um að það ætlunarverk okkar tekst.
Heilsugæslan fyrst á dagskrá
Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar segir að mikilvægt sé að efla heilsugæsluna og tryggja stöðu hennar sem fyrsta viðkomustaðar sjúklinga.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að landsmenn njóti aðgengis að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og heilbrigðiskerfið verður að vera samkeppnisfært við okkar helstu nágrannalönd, segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags
karleskil@vikudagur.