Viðreisn með jöfnunarsætið í Norðaustur

Benedikt Jóhennesson, formaður Viðreisnar fær jöfnunarþingsætið
Benedikt Jóhennesson, formaður Viðreisnar fær jöfnunarþingsætið

Laust fyrir klukkan 7 í morgun var talningu í Norðausturkjördæmi lokið, RÚV greindi frá þessu. Kjörsókn var 79,9 prósent.

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 26,5 prósent atkvæða og 3 þingmenn. Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn hljóta 20 prósent hvor og tvo þingmenn. Píratar náðu tíu prósenta fylgi og Samfylkingin 8 prósentum. Báðir flokkar fengu einn þingmann.

Viðreisn er með 6,5 prósenta fylgi í kjördæminu og fær inn jöfnunarþingmann eins og staðan er. Þingmenn Norðausturkjördæmis verða eftirfarandi á komandi þingi:

1. Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokkur
2. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Framsóknarflokkur
3. Steingrímur J. Sigfússon, Vinstri græn
4. Njáll Trausti Friðbertsson, Sjálfstæðisflokkur
5. Þórunn Egilsdóttir, Framsóknarflokkur
6. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Vinstri græn
7. Einar Aðalsteinn Brynjólfsson, Píratar
8. Valgerður Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokkur
9. Logi Már Einarsson, Samfylking

Jöfnunarþingsæti hlýtur Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar.

 

Nýjast