Viðræður um aukið samstarf milli þriggja menningarstofnana á Akureyri, Menningarhússins Hofs, Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands hefjast í næsta mánuði. Fulltrúar Akureyrarstofu munu að auki taka þátt í viðræðunum. Rekstur Menningarhússins Hofs hefur gengið vonum framar en hagnaður varð upp á 1,5 milljónir króna af rekstrinum eftir fyrstu tvö starfsárin og yfir 300 þúsund gestir. Önnur og erfiðari staða er uppi á teningunum hjá bæði Leikfélaginu og Sinfóníuhljómsveitinni, sem glímt hafa við verulega rekstrarerfiðleika undanfarin misseri.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarhússins Hofs segir að hvað Hof varðar sé markmið með þeim viðræðum sem senn hefjast um aukið samstarf menningarstofnana í bænum m.a. að ná betri nýtingu fjármuna sem til ráðstöfunar eru hverju sinni og eins líka að auka gæði og fagmennsku í starfsemi þessara stofnana.
Það kemur svo í ljós hversu stór skref menn eru tilbúnir að taka, það er vilji fyrir því meðal fulltrúa allra menningarstofnanana að auka samstarfið, en hvort það verður í fyrstu um einstök verkefni, rekstur ákveðinna deilda eða eitthvað enn meira leiðir tíminn í ljós, segir Ingibjörg.
Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags sem kom út í dag.