VIÐAR ÖRN KJARTANSSON GENGUR TIL LIÐS VIÐ KA

Viðar  Örn Kjartansson gengur til lið við KA
Viðar Örn Kjartansson gengur til lið við KA

,,Knattspyrnudeild KA barst í dag heldur betur stórkostlegur liðsstyrkur þegar Viðar Örn Kjartansson skrifaði undir samning við félagið. Viðar Örn er einhver allra mesti markaskorari í sögu Íslands og segir það ansi mikið um það umhverfi sem við höfum skapað hér fyrir norðan að Viðar Örn gangi í raðir KA" segir í nýrri frétt á heimasíðu KA í morgun.

Viðar Örn er 34 ára gamall og gengur í raðir KA frá Búlgarska liðinu CSKA 1948. Viðar hefur leikið með stórum liðum á sínum ferli en 2014 hélt hann út til Vålerenga í Noregi þar sem hann varð markakóngur efstu deildar með 25 mörk í 29 leikjum.

Í kjölfar þessa stórkostlega tímabils í Noregi var hann keyptur til Jiangsu Sainty í Kína. Þaðan lá leiðin til Malmö FF í Svíþjóð þar sem hann gerði 14 mörk í 20 leikjum uns hann gekk í raðir Ísraelska stórliðsins Maccabi Tel Aviv. Með Maccabi gerði hann 32 mörk í 63 leikjum.

Árið 2018 gekk hann í raðir Rostov í Rússlandi en hann lék einnig með Rubin Kazan þar í landi. Hann sneri svo aftur í Vålerenga þar sem hann gerði 18 mörk í 42 leikjum. Eftir góða frammistöðu með Vålerenga lá leiðin til Grikklands þar sem hann lék með Atromitos áður en hann hélt til Búlgaríu.

Þá hefur Viðar Örn leikið 32 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og gert í þeim fjögur mörk, þar á meðal glæsilegt mark gegn Danmörku í þjóðadeildinni. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn norður og hlökkum til að sjá til hans í gula og bláa búningnum.

Segir enn fremur í áður nefndri frétt frá KA.

 

 


Athugasemdir

Nýjast