Verkefnastaðan sjaldan verið betri

Kælismiðjan Frost er stærsta fyrirtæki landsins á sínu sviði og er með starfsstöðvar á Akureyri og í Garðabæ. Starfsmenn eru um fjörutíu og erlend verkefni fara vaxandi. Gunnar Larsen framkvæmdastjóri er bjartsýnn í upphafi nýs árs.

„Verkefnastaðan nú í upphafi ársins er mjög góð, við erum með næg verkefni fram á sumarið. Stærsta verkefnið er að setja upp frystigeymslu fyrir HB Granda í Reykjavík, hún á að vera komin í gagnið í byrjun júní. Síðan stendur til að breyta frystikerfinu um borð í Guðmundi VE, það er nokkuð stórt verkefni. Þannig að ég get ekki annað en verið bjartsýnn á árið.“

 Nánar er rætt við Gunnar í prentútgáfu Vikudags, sem kemur út í dag.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast