Það er nauðsynlegt fyrir okkur að ná þremur stigum úr þessum leik ef við ætlum að halda okkur í toppbaráttunni, segir Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs, en liðið tekur á móti Víkingi R. á Þórsvelli í kvöld kl. 18:30 í 1. deild karla í knattspyrnu. Þór hefur þrettán stig í öðru sæti og er tveimur stigum á eftir toppliði Fjölnis að sjö umferðum loknum. Nánar er rætt við Pál Viðar um leikinn í kvöld og stöðu liðsins í deildinni í prentútgáfu Vikudags sem kom út í gær.