Veðurklúbburinn á Dalbæ með spá fyrir febrúar

Vonandi verður hægt að bregða sér á síði í febrúar
Vonandi verður hægt að bregða sér á síði í febrúar

Tíð verður rysjótt í febrúar.  Það telja spámenn í Veðurklúbbnum á Dalbæ í Dalvíkurbyggð. Klúbbfélagar eru nokkuð vissir um að tveir snjóhvellir verði í þessum mánuði og mun sá síðari vera sýnu harðar en sá fyrr.

Spá sína byggja spámenn m.a. á draumi eins félaganna en hann dreymdi eina nóttina að hann var staddur í fjárhúsi og horði yfir króna þar sem hann sá bíldóttar ær og tvö lömb í sama lit.  En einnig að tungl mun kvikna í austri 10. febrúar kl. 7.20 og er það sunnudagstungl. Draumurinn, sem og sunnudagstunglið telja klúbbfélagar  helsta fyrirboða rysjóttar tíðar í komandi febrúarmánuði.  Að öðru leyti eru félagsmenn nokkuð bjartsýnir á það sem eftir lifir vetrar. 

Engin spá var gefin út fyrir janúarmánuð og segja félagar að óviðráðanlegir tækiörðugleikar hafi orðið þess valdandi, „tæknin er alltaf að stríða okkur,“ segja þeir.

Nýjast