Fundur var haldinn í Veðurklúbbi Dalbæjar í gær og mættu átta félagar.
Fundarmenn voru eftir atvikum sáttir við desemberspána, þó svo að smávægilega hafi brugðið út frá væntingum, þá væri það alls ekki til að hafa orð á.
Í janúarmánuði kvikna tvö tungl. Hið fyrra 1. janúar kl. 11:13 í SA og hið síðara 30. janúar kl. 21:39 í NV. Hitastig verður ámóta og í desembermánuði en þó má búast við að það verði heldur vindasamara. Einnig höðu klúbbfélagar tilfinningu fyrir því að það kæmi a.m.k. ein góð rumpa í máðuðinum, segir í tilkynningu frá veðurklúbbnum, sem lét fylgja með draum eins í klúbbnum:
Hann var staddur í fjárhúsi á fengitíma og sá eina drifhvíta á, sem honum fannst bera af öðrum kindum í hópnum. Aðrar kindur voru heldur dekkri og jafnvel blautar. Eins voru þar þrír eða fjórir lambhrútar og hugðist hann velja einn þeirra handa ánni fögru. Hann valdi þann sem honum leist best á, en hann gagnast ánni ekki neitt.
Klúbbfélagar gefa ekkert frekar upp um ráðningu á þessum draumi, en láta hverjum og einum eftir að meta spágildi hanns.