Veðurblíða um helgina

Það ætti að viðra vel til útilegu um helgina.
Það ætti að viðra vel til útilegu um helgina.

Veðurblíða er framundan á landinu og búist við sólríku og björtu veðri um helgina. Á Norðurlandi verður hitinn á bilinu 13-17 stig, léttskýjað og vindur hægur, samkvæmt staðarspá Veðurstofu Íslands. Hins vegar getur hitinn farið niður í 4 stig á nóttunum og því ættu þeir sem hyggjast gista í tjöldum um helgina að klæða sig vel. Þessi rjómablíðu tekur hins vegar enda í byrjun vikunnar og fer að rigna.

Nýjast