Vatnsleki í húsnæði JMJ á Akureyri

Slökkvilið Akureyrar var kallað að húsnæði verslunarinnar JMJ við Gránufélagsgötu uppúr klukkan átta í morgun vegna vatnsleka. Samkvæmt upplýsingum Viðars Þorleifssonar varðstjóra, sprungu tveir ofnar á 2. hæð hússins með þeim afleiðingum að heitt vatn flæddi þar um öll gólf, auk þess sem vatn lak niður í verslun JMJ. Á annarri hæðinni var mikill hiti og gufa þegar slökkviliðið kom á staðinn en þar starfar m.a. uppstoppari, sem var m.a. að stoppa upp ísbjörn og fugla. Einnig voru bækur í kössum í einu herberginu, þarna er líka starfsrækt bókhaldsskrifstofa og húðflúrstofa. Talið er þarna hafi orðið töluverðar skemmdir en Viðar sagði ekki gott að segja til um það á þesari stundu hversu mikið tjónið er. Hann sagði heldur ekki ljóst hveru lengi vatn lak um húsakynnin en líklegast að það hafi byrjað að leka í gærkvöld eða nótt. Slökkviliðið notaði nokkrar dælur til að dæla vatni á efri hæðinni og ein dæla var notuð í verslun JMJ, samkvæmt upplýsingum Viðars. Þessa stundina er unnið að þrifum í húsnæðinu.

Nýjast