Vatn tekið af í Síðuhverfi í fyrramálið

Vegna lokaviðgerðar í brunni á mótum Vestursíðu og Bugðusíðu á Akureyri þarf að taka heita vatnið af á stóru svæði  í fyrramálið 3. apríl frá kl.8:00 og fram eftir degi

Lokunarsvæðið tekur til hluta af Núpasíðu, hluta af Stapasíðu, Kjalarsíðu 1a og 1b og Vestursíðu, sjá nánar á myndinni hér fyrir neðan.

Viðskiptavinum er bent á að gæta vel að því að allir kranar séu lokaðir þegar vatn kemur á aftur. Eins er viðskiptavinum bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði. Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á. Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess.

Nýjast