Skortur er á mönnun og nauðsynlegri endurnýjun á sérfræðimenntuðu starfssfólki á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta kemur fram í pistli Sigurðar E. Sigurðssonar framkvæmdastjóra lækninga og handlækningasviðs sem hann skrifar á vef sjúkrahússins. Staðan þessi misseri er sú að margir þættir koma saman sem gera vandamálið stærra og erfiðara en oftast áður. Ungir sérfræðingar flytja ekki heim erlendis frá úr sérfræðinámi eins og áður og því vantar nauðsynlega endurnýjun.
Vaktabyrði þeirra sem eldri eru hefur því aukist og fleiri hafa kosið að nýta sér það ákvæði í kjarasamningum sem undanskilur menn frá vaktavinnu eftir 55 ára aldur. Enginn einn maður kemur til með að leysa þetta og engin ein töfralausn er til. Hér þarf margþátta aðgerðir og það þarf fjármagn, segir Sigurður í pistli sínum.
throstur@vikudagur.is