Vandræðalaust hjá Þór í Breiðaholtinu

Þór lenti ekki í neinum vandræðum með lið Leiknis er liðin mættust í Breiðaholtinu í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Þór sigraði 5-1  en staðan var 1-1 að loknum fyrri hálfleik. Janez Vrenko, Jóhann Helgi Hannesson, Sveinn Elías Jónsson, Ármann Pétur Ævarsson og Halldór Orri Hjaltason skoruðu mörk Þórs í dag en Damir Muminovic skoraði mark Leiknis sem kom úr vítaspyrnu í byrjun leiks. Þór situr í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig, en á tvo leiki til góða á næstu lið. Leiknir er áfram á botninum með eitt stig.

 

Nýjast