Geisladiskurinn Ég sé Akureyri er nú kominn í verslanir en tilefnið er 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Það var Bjarni Hafþór Helgason sem samdi samnefnd afmælislag plötunnar. Afmælisnefnd bæjarins ákvað að styrkja hljóðvinnslu á laginu, sem fjallar um fólkið sem fæðist, lifir og deyr á bökkum Glerár sem rennur í gegnum bæinn. Óskar Pétursson og Jóhann Vilhjálmsson leiða sönginn á plötunni en það eru tónlistarmenn við Tónlistarskólann á Akureyri sem sjá að mestu leyti um að spila inn á plötuna.
Um tíu laga disk er að ræða en öll lögin eiga það sameiginlegt að hafa með einhverjum hætti skírskotun til Akureyrar. Auk bæjarins hefur fjöldi fyrirtækja og einstaklinga lagt verkefninu lið en því hefur fylgt mikill kostnaður og ekkert til sparað. Á plötunni Ég sé Akureyri eru að finna lög eins og Vor í Vaglaskógi, Glókoll, "Dalakofann", "Á heimleið og fleiri.
Gunnar Þórðarson sá um allar útsetningar en stærsti hluti af upptökum fór fram í hljóðverum í Hofi á Akureyri í fyrri hluta maímánaðar. Mikið er lagt í diskinn, hann er ætlaður bæjarbúum sem verða í afmælisskapi á næstunni og jafnframt hugsaður sem kveðja Akureyringa til allra landsmanna.